Dagskráin tilbúin
 

23. Júlí 10 kl. 13.48

Dagskráin tilbúin

Hefst alla daga kl 14.30 og öll kvöld kl 20.30 
Nú er dagskrá Þjóðhátíðarinnar endanlega tilbúin og vert að geta þess að nú þarf bara að muna tvær tímasetningar. Þ.e 14.30 hefst barnadagskráin alla daga hátíðarinnar. En vandað er sérstaklega til barnadagskránar á þjóðhátíð í ár. Kvöldvökurnar hefjast svo allar klukkan 20.30. 
nánar...
Aukarými um borð í Herjólfi
 

23. Júlí 10 kl. 11.29

Aukarými um borð í Herjólfi

100 fleiri farþegar í ferð 
Eimskip hefur fengið leyfi vegna ferjuflutninga Herjólfs um að fjölga í ferðum Herjólfs sem nemur 100 manns í hverri ferð. Á þetta einungis við um ferðir yfir Þjóðhátíðina. Munar þetta gríðarlega miklu fyrir flutninganna enda var orðið fullt í nánast allar ferðir til Eyja kringum Þjóðhátíðina.
nánar...
Forsölu lýkur miðvikudaginn 28. júlí
 

22. Júlí 10 kl. 14.13

Forsölu lýkur miðvikudaginn 28. júlí

 
Forsala miða á þjóðhátíð er nú í fullum gangi. Henni lýkur miðvikudaginn 28. júlí á miðnætti. Miðar í forsölu eru seldir í öllum verslunum 10/11, í Skýlinu Vestmannaeyjum og í skóbæ á Selfossi. Miðinn í forsölu kostar 11.900,-
nánar...
Mikið af fólki komið til að hjálpa til við uppbygginguna í dalnum
 

21. Júlí 10 kl. 13.35

Mikið af fólki komið til að hjálpa til við uppbygginguna í dalnum

Fyrirliðar karla og kvennaliðs ÍBV láta ekki sitt eftir liggja 
Mikið er við að vera í herjólfsdal þessa dagana. Spennan fyrir hátíðina er að magnast og fólk styttir sér stundir með því að koma og hjálpa til við undirbúning hátíðarinnar. Það er að mörgu að huga í framkvæmd svona stórrar hátíðar og gaman að sjá hversu margir eru til í að koma og veita okkur lið í uppbyggingunni. Meðal þeirra sem mættu í gær voru fyrirliðar meistaraflikka karla og kvenna í knattspyrnu. Sjá má fleiri myndir með því að smella á ,,nánar". Við hvetjum alla sem vetlingi geta valdið að koma og hjálpa til.
nánar...
Símakerfi Herjólfs að bráðna
 

20. Júlí 10 kl. 12.04

Símakerfi Herjólfs að bráðna

uppselt í allar ferðir á mánudag 
 Afgreiðsla Herjólfs vill láta koma fram að laust er í ferðir sem eru aðfararnótt föstudagsins 29.júlí, um nóttina(kl 03:00 og 06:00 frá Eyjum) og svo til baka aðfararnótt miðvikudagsins 4.ágúst. 
Uppselt er í allar ferðir fimmtudaginn 29.júlí, mánudaginn 2.ágúst, þriðjudaginn 3.ágúst!
nánar...
8 ferðir með Herjólfi 2.ágúst
 

19. Júlí 10 kl. 15.30

8 ferðir með Herjólfi 2.ágúst

bæta við ferðum 
Herjólfur fer nú 8 ferðir eftir Þjóðhátíð frá Eyjum. Vegna mikillar aðsóknar hefur Herjólfur ákveðið að bæta við ferðum bæði á mánudag eftir Þjóðhátíð og einnig á föstudeginum fyrir Þjóðhátíð. Þær ferðir sem eru fyrir hátíðina eru aðfararnótt föstudags þannig að eftir miðnætti á fimmtudag verður hægt að komast með. 
nánar...
Eldri fréttir...