Fréttir
Skálmöld í dalinn
Rokksveitin Skálmöld er á meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á Þjóðhátíð í Vestmanneyjum í sumar. Að sögn Snæbjörns Ragnarssonar bassaleikara eru meðlimir Skálmaldar óþarflega spenntir fyrir tónleikunum.
Sálin og Ásgeir Trausti á Þjóðhátíð
Sálin hans Jóns míns, sem fagnaði 25 ára afmæli sínu í troðfullri Vodafonehöll um síðustu helgi, spilar á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Einn vinsælasti tónlistarmaður landsins, Ásgeir Trausti, hefur einnig verið bókaður á hátíðina.
SmáauglýsingarSkoða allt
[TL] ÍBÚÐ Þjóðhátíð
Gistiplás fyrir 8 svefnloft, eitt svefniherbergi, baðherbergi eldhús,stofa.
allt til alls!
Gistiplás fyrir 8 svefnloft, eitt svefniherbergi, baðherbergi eldhús,stofa.
allt til alls!
[ÓE] Vantar bílamiða í herjólf!
Vantar miða fram og til baka í herjólf fyrir 1 bíl ..
fer út til eyja 03/08 kl 16:00 og heim 05/08 kl 12:30
Vantar miða fram og til baka í herjólf fyrir 1 bíl ..
fer út til eyja 03/08 kl 16:00 og heim 05/08 kl 12:30
Line-up
Skálmöld
Skálmöld var stofnuð í ágúst 2009 af sex mönnum sem þekktust mismikið en áttu það sameiginlegt að hafa verið að einhverju leyti sýnilegir í íslensku tónlistarlífi, fæstir þó í harðari tegund tónlistar.
Sálin hans Jóns míns
Syngjandi sveittir (1988)
Bítlavinirnir Rafn Jónsson og Jón Ólafsson ákváðu í febrúar 1988 að stofna soul-band. Þeir fengu þriðja Bítlavininn, bassaleikarann Harald Þorsteinsson, til liðs við sig, auk Guðmundar Jónssonar úr Kikk og Stefáns Hilmarssonar úr Sniglabandinu. Bandið hlaut nafnið Sálin hans Jóns míns.
Ásgeir Trausti
Ásgeir Trausti er ungur tónlistarmaður sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum í vorið 2012. Þar söng hann lagið Sumargestur sem fangaði vorstemninguna og um leið huga þjóðarinnar. Ásgeir Trausti fylgdi vinsældum þess lags eftir með smáskífunni Leyndarmál sem náði gífurlegri hylli og kom honum endanlega á kortið sem einum efnilegasta tónlistarmanni landsins.
Stuðmenn
Það sem einkennir helst tónlist Stuðmanna er að hún á sér engin takmörk,
er hvorki bundin við stíl, tíðaranda né tískusveiflur. Hún leyfir sér að
vera utan allra landamæra og að fara á móti ríkjandi stefnum og straumum
hverju sinni.
Retro Stefson
Retro Stefson er íslensk hljómsveit. Retro Stefson var stofnuð í byrjun ársins 2006 og hefur starfað í ýmsum myndum síðan. Árið 2008 kom fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Montaña, út. Þá lék hljómsveitin á Iceland Airwaves 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011 og síðast 2012. Frægir eru Frostrokk tónleikarnir árið 2006 þar sem Retro Stefson gerði allt vitlaust ásamt hljómsveitum eins og UMTBS, Underdrive (Í þeirri hljómsveit var Stefán Finnbogason, nú meðlimur í hljómsveitinni Sykur), Spooky Jetson og The Unknown.

